Beint á leiðarkerfi vefsins

Reykjagarður hf.

Markaðsstaða Holtakjúklings febrúar 2007

Við höfum reglulega látið Capacent Gallup framkvæma fyrir okkur markaðskönnun um stöðu vörumerkis okkar Holtakjúklings og vorum við að fá nýja könnun í hendurnar sem framkvæmd var í febrúar 2007.  Það er skemmst frá því að segja að Holtakjúklingur er vinsælasti ferski kjúklingurinn á markaðnum í dag, þar sem 26,1% neytenda segjast velja Holtakjúkling umfram aðrar tegundir á markaðnum.  Þetta er mjög gleðilegt fyrir okkur og erum við hæst ánægðir með þessa niðurstöðu.  Hún sýnir að neytendur eru ánægðir með okkar vörur og þau gæði sem í henni felast.  Hér fyrir neðan má sjá mynd sem sýnir þessa niðurstöðu.

Capacent feb2007 allir

Hlutfall þeirra sem kaupa ekki kjúklingaafurðir hefur haldist svipað frá því að við létum fyrst gera þessa könnun eða um 16-17% aðspurða.  Hins vegar hefur þeim fækkað sem segjast versla mismunandi úr því að vera 29,6% fyrst í september 2005 niður í að vera 20,8% núna í febrúar 2007. 

Ef við skoðum hins vega aðeins þá aðila sem segjast versla kjúklingaafurðir þá segjast 31,5% þeirra velja Holtakjúkling umfram aðra valkosti á markaðnum.  Þá niðurstöðu má sjá hér fyrir neðan.

Capacent feb2007 their sem versla