Beint á leiðarkerfi vefsins

Reykjagarður hf.

Holtakjúklingur markaðsstaða

Nú á dögunum lét Reykjagarður gera fyrir sig könnun á meðal viðskiptavina þar sem kannað var hvaða vörumerki þeir helst versla í kjúklingum.  Holtakjúklingur kom mjög sterkt út úr þessari könnun.  Af þeim sem svöruðu spurningunni þá voru það 26,2% sem helst versla vörur frá Holtakjúkling.  Við erum mjög ánægðir með þessa niðurstöðu og hún sýnir að neytendur eru ánægðir með okkar vöru og gæði hennar.  Hér fyrir neðan má sjá svör við þessari spurningarkönnun sem IMG Gallup framkvæmdi fyrir okkur í byrjun september 2005. 


Eins og sést þá svara um 29,6% því að þeir versli frá mismunandi framleiðanda þegar þeir versla kjúklingaafurðir, en 16,2% segjast ekki kaupa kjúklingaafurðir. 

Við hjá Reykjagarði sem framleiðum Holtakjúkling erum mjög ánægðir með þessa niðurstöðu og þökkum neytendum fyrir að velja okkar vörumerki. 

Ef við skoðum þessi svör þannig að einungis þeir sem versla kjúklingaafurðir eru teknir með í reikninginn, þá kemur Holtakjúklingur út með 31,3% svörun sem er frábær niðurstaða, en það má sjá á mynd hér fyrir neðan.