Reykjagarður hf.
Upplýsingar um fyrirtækið Reykjagarð
Reykjagarður hf. var stofnaður 20.febrúar 1971 af Jóni Vigfúsi Bjarnasyni, garðyrkjubónda á Reykjum, og konu hans Hansínu Margréti Bjarnadóttur. Árið 1978 hóf félagið eggja- og kjúklingaframleiðslu. Árið 1982 kaupir félagið alifuglabúið Teig í Mosfellsbæ og var velta þess um 60 milljónir.
Í dag felst sérhæfing fyrirtækisins í framleiðslu og sölu á alifuglaafurðum, einkum undir vörumerkjunum HOLTA og Kjörfugl.
Sagan
Þann 1. janúar 1987 kaupir félagið kjúklingarækt Holtabúsins hf. í Ásahreppi ásamt útungunarstöð og sláturhúsi á Hellu. Árið 1990 festir félagið síðan kaup á þeim hluta Holtabúsins hf. sem eftir var. Árið 1991 seldi það eggjaframleiðslu sína og hætti þá sölu neyslueggja.
Árið 1996 festi félagið kaup á 1400 fermetra húsnæði að Álafossvegi 40 í Mosfellsbæ, þar var til húsa skrifstofa, dreifingarstöð og birgðastöð þess. Dreifing var í höndum félagsins fram til september 2002 þegar samningur var gerður við Landflutninga um að sjá um dreifingu á vörum þess, en í mars 2004 tók Sláturfélag Suðurlands yfir dreifingu á vörum félagsins. Frá miðju ári 2007 hefur Eimskip/Flytjandi verið undirverktaki Reykjagarðs um dreifingu á öllum vörum fyrirtækisins. Skrifstofa félagsins flutti haustið 2003 að Fosshálsi 1 í Reykjavík.
Í ársbyrjun 2001 er félagið selt til Kaupþings hf., en stuttu síðar eignaðist Búnaðarbanki Íslands það samfara viðskiptum með Fóðurblönduna. Búnaðarbanki Íslands átti það fram til ágúst 2002 þegar Sláturfélag Suðurlands (SS) keypti 67% hlutabréfa í Reykjagarði og árið 2007 eignast S.S. Reykjagarð að fullu. Í dag er Reykjagarður alfarið í eigu SS og rekið sem sjálfstætt dótturfyrirtæki SS með sjálfstæðan fjárhag og stjórn - stjórnendur.
Um þessar mundir eru yfir 105 stöðugildi hjá Reykjagarði. Félagið starfar alfarið á innlendum markaði og hefur gert alla tíð. Viðskiptavinir þess eru bæði smásalar, veitingahús og stóreldhús - mötuneyti. Reykjagarður skilgreinir sig fyrst og fremst sem markaðsdrifið framleiðslufyrirtæki og heildsala á kjúklingaafurðum. Aðalvörumerki Reykjagarðs er HOLTAkjúklingur og er vörumerkið það þekktasta á markaðnum.

Stækka letur
Minnka letur
Senda síðu
Prenta síðu
Veftré