Reykjagarður hf.
Uppskriftir
Provence kjúklingabringur með rótargrænmeti og steinseljukartöflum

Hráefni:
4 Provence kjúklingabringur
1 stk. kúrbítur
4 stk. stórar gulrætur
1 stk. sellerírót
3 stk. bökunarkartöflur
¼ poki steinselja
½ lítri rjómi
4 stk. stórir charlottulaukar
1 stk. kjúklingakraftur
1-2 dl.hvítvín eða Mysa
Matreiðsluaðferð:
Kjúklingabringurnar steiktar á pönnu í ca. 2 mínútur á hvorri hlið. Settar í ofn í 8-10 mínútur við 180°c.
Meðlæti:
Grænmeti: Grænmeti steikt á pönnu í ca. 5-7 mínútur með kornolíu. Salt og pipar er bætt við ásamt kjúklingakrafti og látið sjóða í 4 mínútur.
Kartöflur: Skrælið kartöflurnar og skerið í 4 hluta, sjóðið og kælið. Síðan eru kartöflurnar smjörsteiktar á pönnu, á lágum hita og kryddað með salti, pipar og steinselju.
Sósa: Charlottulaukarnir eru smátt skornir og steiktir í olíu. Síðan er hvítvíni(mysu), salt og pipar bætt út í og látið sjóða í ca. 5 mínútur. Að lokum er rjómanum bætt út í og látið sjóða í ca. 10 mínútur.
Stækka letur
Minnka letur
Senda síðu
Prenta síðu
Veftré