Beint á leiðarkerfi vefsins

Reykjagarður hf.

Slóðin þín:

Vörur » Álegg frá Holtakjúkling

Álegg frá Holtakjúkling

Reykjagarður hefur framleitt kjúklingaálegg í meira en 20 ár undir vörumerkinu HOLTA.  Var léttreykta kjúklingaáleggið fyrsta áleggið sem Reykjagarður framleiddi.  Áherslan hefur frá upphafi verið á að framleiða kjúklingaálegg sem hefur hollustu í fyrirrúmi, þannig að það sé fitulitið og hollt.  Þess má geta að einungis með 0,7% fitu er í léttreykta kjúklingaáleggið og óreykta kjúklingaáleggið sem setur þau í hóp fituminnstu áleggs sem fæst á Íslandi.  Í dag býður Reykjagarður upp á tvær tegundir kjúklingaáleggs fyrir verslanir og mötuneyti.  Þessar tegundir eru: 

  • Óreykt kjúklingaálegg,
  • Léttreykt kjúklingaálegg. 

Léttreykta kjúklingaáleggið hefur verið mjög vinsælt frá upphafi og hlotið mörg verðlaun í samkeppni fagmanna, m.a. nokkur gullverðlaun í fagkeppni meistarafélags kjötiðnarmanna og nú síðast sem fór fram 2010.  Lengi vel var léttreykta áleggið það eina sem var á markaðnum frá Reykjagarðri en á seinni árum hefur verið bætt við þá flóru með tilkomu fleiri áleggstegunda.

 Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir næringargildi á hvoru áleggi fyrir sig.   

Næringargildi í 100 gr.

Óreykt kjúklingaálegg

Léttreykt kjúklingaálegg

Orka

315 kJ (70 kcal)

383 kJ (90 kcal)

Prótein

20 gr.

20 gr.

Kolvetni

0,9 gr.

0,9 gr.

Fita

0,7 gr.

0,7 gr.

Natríum

0,7 gr.

0,7 gr.