Nýjar vörur

Nýjar vörur bætast jafnt og þétt við vöruúrval okkar. Við erum í stöðugri vöruþróun og kappkostum að bjóða sífellt upp á nýjungar.

Nýjar vörur

Nýjar vörur bætast jafnt og þétt við vöruúrval okkar. Við erum í stöðugri vöruþróun og kappkostum að bjóða sífellt upp á nýjungar.

Þunnskornar bringusneiðar

Fersk og þægileg lausn fyrir neytendur sem vilja fljótlega, einfalda og fjölhæfa máltíð.

Holta þunnskornar kjúklingabringur eru úrbeinaðar kjúklingabringur sem hafa verið skornar í þunnar sneiðar. Þær eru því fljótlegar í eldun, auðveldar í meðhöndlun og henta vel í fjölbreytta rétti.

Varan er sérstaklega hentug fyrir hraða matargerð þar sem stuttur eldunartími skiptir máli. Bringurnar má steikja á pönnu, grilla, baka í ofni eða elda í air fryer.

Þær henta einnig mjög vel í asískar núðlur, kjúklingavefjur, salöt, pastarétti, samlokur, kjúklingaborgara og létta próteinríka rétti.

Reykjagarður hf

Fosshálsi 1

110 Reykjavík

Opnunartímar

Söluskrifstofa er opin:

Mánudaga til fimmtudaga

08:00 - 16:00

Föstudaga

08:00 - 15:00

Póstlisti Holta