Nýjar vörur
Nýjar vörur bætast jafnt og þétt við vöruúrval okkar. Við erum í stöðugri vöruþróun og kappkostum að bjóða sífellt upp á nýjungar.
Nýjar vörur
Nýjar vörur bætast jafnt og þétt við vöruúrval okkar. Við erum í stöðugri vöruþróun og kappkostum að bjóða sífellt upp á nýjungar.
Þunnskornar bringusneiðar
Fersk og þægileg lausn fyrir neytendur sem vilja fljótlega, einfalda og fjölhæfa máltíð.
Holta þunnskornar kjúklingabringur eru úrbeinaðar kjúklingabringur sem hafa verið skornar í þunnar sneiðar. Þær eru því fljótlegar í eldun, auðveldar í meðhöndlun og henta vel í fjölbreytta rétti.
Varan er sérstaklega hentug fyrir hraða matargerð þar sem stuttur eldunartími skiptir máli. Bringurnar má steikja á pönnu, grilla, baka í ofni eða elda í air fryer.
Þær henta einnig mjög vel í asískar núðlur, kjúklingavefjur, salöt, pastarétti, samlokur, kjúklingaborgara og létta próteinríka rétti.
Gott á grillið
Tex-Mex kjúklingalundir
Lífleg og bragðmikil marinering með skemmtilega krydduðum Tex-Mex tónum. Hentar einstaklega vel fyrir þá sem vilja aðeins meira karakter í bragðið, hvort sem það er með hrísgrjónum, vefjum, salati eða grilluðu meðlæti. Fljótlegt og þægilegt í matinn, tilbúið á um 8–10 mínútum á grillinu við meðalhita.
Gráðosta & beikon kjúklingalundir
Bragðmikil og safarík vara þar sem milt gráðostabragð blandast ljúffengu beikonkeimi. Útkoman er einstaklega mjúkur og bragðgóður kjúklingur sem hentar vel með fersku salati, kartöflum eða grilluðu grænmeti. Tilbúið á örfáum mínútum, eða um 8–10 mínútum á grillinu við meðalhita.










